Líkt og við þekkjum standa Costco meðlimir þétt við bakið hver á öðrum. Í gegnum góðar og slæmar fréttir af verðhækkunum og lækkunum – er æðruleysisbænin númer eitt, tvö og þrjú.
Jón Ragnar ábúandi í Rangárvallarsýslu var sendur í Costco til að kaupa vöffludeig – lýsti yfir áhyggjum sínum af því – og fékk alla þá mögulegu hjálp sem í boði var.
Hann fékk svar um mögulega birgðastöðu, mynd af vörunni, boð um lán á vörunni – og alls kyns andlegan stuðning.
Jón gaf svo skýrslu í lok færslunnar – og svo heldur lífið áfram sinn vanagang … í Costco-Gleði.