Árið er 2015 og ofurhugar eru allsstaðar. Eða réttara sagt, það á annar hver maður Go-Pro myndavél og fólk (allsstaðar) er að gera heimskulega hluti!
Youtube-arinn ‘OlegCricket’ deildi nýju myndbandi á dögunum þar sem hann sést stökkva á milli palla á skýjakljúfri í Dubai. Sumir kalla þetta ‘parkour’, aðrir myndu kalla þetta heimsku.
Þetta er ekki fyrir lofthrædda!
-Ekki gleyma að smella í bestu mögulegu gæði og stækka skjáinn – Og þú ert komin/n hálfa leið til Dubai! –