Black Panther var að koma út og þessi nýjasta Marvel ofurhetjumynd fær þvílíkt góða dóma frá öllum gagnrýnendum. Eins og þið sjáið hér fyrir neðan þá fær hún meira að segja 100% á gagnrýnendasíðunni Rotten Tomatoes.
Chadwick Boseman fer með aðalhlutverk myndarinnar sem Black Panther.
Hún Lupita Nyong’o – óskarsverðlaunahafi – leikur eitt af aðalhlutverkum myndarinnar.
Hvort sem að það var LA Times, The Times of London, New York Times eða Associated Press þá voru allir gagnrýnendur sammála um að þetta væri myndin sem við hefðum alltaf viljað sjá en vissum það ekki fyrr en við sáum hana.
Það er því óhætt að segja að allir ættu að vera spenntir að sjá Black Panther – sem er einmitt væntanleg í bíóhús landsins á næstunni.